• Gakktu í klúbbinn
  • Viðburðir
  • Veður
  • Um Krúser
  • Myndir
  • KrúsTube
  • Spjallið
  • Forsíða

Nýjustu myndirnar

  • 2023 Ford Bronco WildtrakFord Customline Victoria ´56Chevrolet Camaro SS ´67Oldmobile Super 88 ´58Krúserhópurinn á flickr

Vinir okkar

    • Bílaklúbbur Akureyrar
    • Blúsfélag Reykjavíkur
    • Camaro.is
    • Íslenski Cadillac Klúbburinn
    • Íslenski Mustang klúbburinn
    • Kvartmíluklúbburinn
    • Lögreglan
    • Mercedes-Benz klúbburinn
    • Vátryggingafélag Íslands

Facebook síða krúser

  • Opna facebook síðuna

Írskir dagar á Laugardaginn

28 júní, 2011 eftir bg

Næsta laugardag (2. júlí 2011) er okkur Krúser félögum boðið að vera þátttakendur á Írskum dögum á Akranesi, eins og undan farin ár.

Brottför frá nýja félagsheimili Krúser, að Höfðabakka 9 verður stundvíslega kl 12,30 (Mæting kl. 12)
Viðvera okkar á Akranesi er frá kl. 13 – 16.
Akranesbær býður okkur hressingu á meðan að bílasýning stendur yfir.

Ath. Miðar í Hvalfjarðargöngin (fram og til baka) verða afhentir á Höfðabakka 9 rétt fyrir brottför.

Á fimmtudaginn er Krúserkvöld eins og venjulega húsið opnar kl. 20 og við förum örugglega á rúntinn ef veðrið verður svona gott.

Allir bílaáhugamenn eru velkomnir í heimsókn í félagsheimilið, sem er að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Hjá okkur er nóg af bílastæðum, en portið norðanmegin er frátekið fyrir glæsivagna á fimmtudögum. Þeir sem mæta á fjölskyldubílnum eru vinsamlega beðnir að leggja fyrir sunnan húsið, þar er líka inngangur í Krúserhöllina.

–
Krúser – bara gaman

Sent inn í Fréttir | engin ummæli