Fréttasafn fyrir júní, 2011

Hæ hó jibbí jei :)

17. júní á morgun og margir af bílunum okkar eru grútskítugir eftir langan vetur í öskufalli og rykmengun. Við kippum því í liðinn í kvöld, takið með ykkur bóngræjurnar, tannburstana og eyrnapinnana og þrífið bílinn almennilega fyrir bílasýninguna sem verður á Skothúsveginum á morgun. — Krúser – bara gaman

Lesa alla færslu »

Krúser á Skothúsvegi 17. júní

Krúserar verða með bílasýningu á Skothúsveginum 17. júní eins og undanfarin ár. Þeir sem ætla að keyra mæta ekki seinna en kl. 12:20 í Sætún (gamla Heimilistækjaplanið), ökum sömu leið og í fyrra inn á Laugaveginn kl. 13.00, förum í 1 gír og röðum okkur á Skothúsveginn. Krúserbandið heldur uppi stuðinu á svæðinu frá kl. 15 […]

Lesa alla færslu »

Fimmtudagur og Krúserkvöld

Í kvöld er Krúserkvöld, eins og alla fimmtudaga húsið opnar kl. 20. Það getur vel verið að við förum á rúntinn í kvöld, bara að muna að kveikja á miðstöðinni því það er skítkalt. Allir bílaáhugamenn velkomnir, næg bílastæði 🙂 félagsheimili Krúser er að Höfðabakka 9, Reykjavík. — Krúser – bara gaman

Lesa alla færslu »

« Prev - Next »